Um mig

Ég hef verið að blogga um mat síðan 2008 með mis löngum hléum. Að mennt er ég textílhönnuður og myndlistarmaður, útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands 2001 með grafík sem sérsvið.  Eftir listnámið hef ég ferðast víða,  ásamt því að hafa búið á Spáni, í Kaupmannahöfn og Kamloops í Kanada.  Ég stundaði nám í margmiðlun með  áherslu á hreyfimyndagerð.

soffia

matjurtagardurinn

Ég hef verið að byggja mér heimili við sjóinn í sveitinni.  Þar get ég sameinað mörg áhugamál, ræktað mitt eigið grænmeti, slakað á í fallegu umhverfi með fjölskyldunni, horft á hafið á meðan ég blaða í gegnum matreiðslu og híbýlablöð, innréttað heimilið mitt eftir mínu höfði og spáð og spekulerað endalaust í innanhúshönnun, húsgögnum, innréttingum, flísum og fleiru skemmtilegu.  Og síðast en ekki síst tekið á móti gestum og eldað ofan í þá.

eldhus

Eldhúsið er hjartað i heimilinu, það tekur sífelldum breytingum.  En það hefur alltaf verið hjartað, líka þegar ekkert var þar nema lítill sumarbústaðarofn á gólfinu og gamalt ikea skrifborð sem matarborð.  Alltaf var hægt að töfra fram eitthvað gott.

Loksins er eldhúsið að líkjast endanlegri útkomu.  Ég hef skoðað mikið af blöðum og verfsíðum til að fá hugmyndir.  Og ég held ég sé nokkurnvegin að detta niður á það sem ég vil.  Fyrir þá sem vilja þá er hægt að skoða “mood board” sem ég gerði um mitt draumaeldhús á pinterest vefnum hér.

"hafið bláa"

Útsýnið í Hvalfirðinum

Ég var að lesa grein um daginn í blaði, skrifuð af dálkahöfundi í Country Living.  Hún býr í sveit og allt er svo rómantískt sem hún skrifar um um sveitina sína, eina pöbbinn, hanagal, samheldnir nágrannar, maturinn beint af býli og svo framvegis.  Ég fór að öfunda hana og hugsaði með mér hvað það væri gaman að búa svona og sá þetta alveg fyrir mér.  Ég sá þetta eiginlega einum og vel fyrir mér.  Þá rann það upp fyrir mér, bíddu aðeins.  Ég bý svona.

Ég bý í húsi upp í sveit við sjóinn, með hænur á vappi og landið þakið krækiberjum á haustin.  Í þessu húsi bý ég með besta fólki í heimi, og góðum grönnum og versla beint af býli.

Hani

Ofar við veginn búa svo bændurnir, vinir okkar.  Þar reka þau nautabú og litla sælkeraverslun með dásamlegum heimagerðum afurðum.  Þarna fæ ég besta kjöt í heima, beint af býli.

Í sjónum fyrir neðan er spriklandi ferskur kræklingur, ýsa og þorskur.  Berin allt um kring á haustin og matjurtagarðurinn blómstar á sumrin.

batur

Báturinn okkar stóð við bryggjuna, á honum fórum við í skemmtiferðir með vinum og veiddum okkur fisk í soðið á spegilsléttum firðinum.

strondin

Fátt er notalegra en að fara á ströndina og leggjast í heitan sandinn, en ströndin er heit af náttúrunnar hendi sem og lítil laug sem er staðsett í fjörunni.  Ófáum stundum höfum við eitt þar í miðnætursólinni á sumrin og við stjörnubjartan himinn að vetri til.

skal

Svo á ég yndislegt eldhús og nóg af plássi til að taka á móti öllum góðum vinum úr borginni sem koma í “bed & breakfast”.