Húsið við sjóinn

Foodwaves

Month: April, 2012

Eldhúsbréf

Hér eru nokkrar fyrir og eftir myndir af eldhúsinu. Loksins er búið að tengja fyrir mig gashellurnar mínar. En hvað það er gaman að vera komin með gashellur. Það hafa verið þó nokkrar framkvæmdir í eldhúsinu undafarið.

Ég datt niður á mynd sem ég tók af eldhúsinu þegar það var mjög hrátt og allt þar inni tímabundið.

eldhús

Allar hillur og eldhúsbekkurinn eru úr mótatimbri og gamalli hurð.  Gamla hurðin, enn með hurðarhúninum er enn notuð sem eldhúsborðplata, það er mjög sætt en ekki mjög praktískt þegar kemur að þrifum þannig að því miður mun hún víkja fljótlega fyrir flísalagðri borðplötu.

eldhus

Sú mynd minnti mig á að vera dugleg að taka myndir af þróuninni, það er nefnilega gaman að fylgjast með eldhúsinu mótast og verða svo loks eins og ég vil hafa það.

Ég hef verið dugleg að safna hugmyndum á pinterest “mood board” ið mitt. Það var fyndið að sjá hvað ég hef líka verið dugleg að fylgja eftir þeim hugmyndum sem ég hef fundið og líkað.

Sérstaklega fannst mér sniðugt þegar ég fattaði að ég var greinilega undir miklum áhrifum frá þessari hugmynd.

inspire_01

Eins og sést kannski hér á hilluberum, hillum og ljósinu : )  Við ákváðum að skella á vinarlegum grænum lit á vegginn í staðin fyrir hvíta sem fyrir var. Það gerir þetta meira sveitó, svona fyrst við erum í sveitinni.

eldhus4

Svo fann ég þessa bleiku hillu, liturinn var nú ekki það sem heillaði  mig, heldur vantaði mig svona diskarekka.  Þannig að ég hugsaði sem svo að það er hægt að mála, en ég ætla að leyfa hillunni að vera bleikri þar til ég fæ leið á þvi.

Svo vantar bara diska í hilluna.  Þessir einlitu hvítu sem ég á voru ekki að dansa þannig að þetta fær að vera kryddhilla þar til ég finn mér fallega diska.

hilla

Eldhúsið er enn í vinnslu, það verður tekinn skurkur um næstu helgi og þá get ég tekið betri myndir og frá sama sjónarhorni og efsta myndir hér.

Páskarnir eru bara einu sinni á ári…Berja-Sorbet

Maður heyrir oft, “en þetta er bara einu sinni á ári”.  Ég hef staðið mig að þvi að segja þetta of oft undanfarið!  Það eru jól og páskar og sumardagurinn fyrsti og afmæli og sumarbúðstaðarferð, sprengidagur, bolludagur, öskudagur og og og…

Úr varð að ég hef ekki keypt sælgæti síðan um páskana!

Önnur vinsæl setning hjá mér er:  Það er í lagi að leyfa sér þetta endrum og eins, orð að sönnu en þá þarf maður líka að hafa góða skilgreiningu á “endrum og eins”.

Ég hef verið að nota frosin ber í ýmislegt undanfarið.  Ég bý reglulega til “sultu” eða sýróp eða þá sorbet.  Ég hef ekki keypt sultur út í búð lengi.  Hér stjórnar maður sykurmagni og maður getur notað ýmis önnur sætuefni eins og t.d döðlur.

Það eru svipaðar aðferðir við þetta en svo fer ég að þegar ég geri Sorbet.  Þetta er eitthvað sem maður getur leyft sér endrum og eins…

sorbet

Berja-Sorbet 

  • 3 bollar frosin ber
  • 1 bolli sykur
  • 2 bollar vatn
  • Safi og zest af sítrónu
  • 3 msk appelsínusafi

Blandið öllu í pott og látið suðu koma upp.  Lækkið hitann og leyfið malla í 10 mín.  Setjið þetta í blender og maukið. Sigtið mestan vökva frá.  (Geymið vökvann sem þið sigtið inn í  ísskáp, það er gott sýróp). Látið blönduna í ílát sem þolir frost og inn í frysti í a.m.k 3 klst.

Ég er ekki með ísvél þannig að þetta verður harður klumpur og því gott að taka hann út úr frysti örlítið áður en þið ætlið að bera hann fram.

pönnukaka

Sömu uppskrift er hægt að nota sem sultu og sleppa því að setja þetta í frysti og ég set hana ekki í blender, heldur bara beint í ísskáp.  Þetta mun ekki hlaupa eins og sulta en er rosalega gott, og frábært með pönnukökum og rjóma, sem maður leyfir sér endrum og eins.

Bækur tengdar mat og matarpólitík (þó ekki uppskriftabækur)

Það er eins gott að ég á ekki sjónvarp, því það er nóg lesefni framundan. Ég er búin að vera að sækja mér “sample” af hinum og þessum bókum hjá Amazon á kindle-inn minn.

Allt bækur sem tengist mat á einhvern hátt. Svona “sample” eru bara 1 eða 2 kaflar þannig að ég fékk valkvíða þegar kom að því að ákveða hvaða bók ég ætti að fá mér því mig langaði að lesa þær allar.

En ég er komin að niðurstöðu og ætla að fjárfesta í bók sem heitir Animal, Vegetable, Miracle og er um fjölskyldu sem flytur upp í sveit og tekur eitt ár í að lifa á eigin uppskeru og því sem fæst í þeirra nánasta nágrenni.

Aðrar bækur sem rötuðu sem “sample” á Kindle-in og mér þóttu áhugarverðar voru:

Lífið í sveitinni var gott um helgina, sumarið fór vel af stað.  Blankalogn var í firðinum góða frá því á Sumardaginn fyrsta og alla helgina .  Hafgolan lét ekkert sjá sjá sig.
Á Sumardaginn fyrsta sáum við að það snjóaði í fjallinu á móti.  Það fundu örfá snjókorn sér leið yfir til okkar, en það er bara við hæfi á þessum fyrsta degi sumars.
kjós
En svo var það bara sól og blíða það sem eftir var.
kjós

Beef dip og ólífuolíuskandallinn

Hafið þið ekki heyrt um ólífuolíu skandalinn hér fyrir nokkrum árum, þar sem extra virgin ólífuolía er ekki hrein ólífuolía heldur oftar en ekki bara ódýrasta olían sem finnst (ekki einu sinni ódýrasta ólífuolían, bara hvaða olía sem er) blönduð við jafnvel annan flokks ólífuolíu og með litarefni og bragðefni.

Það er talað um að um 70% af öllum Extra virgin ólífuolíum í hillum stórmarkaða séu ekki 100%. Ég var að reyna að googla nokkrar tegundir og las á einhverju bloggi að Olitalia sé ekki með hreina ólífuolíu. Það á nefnilega líka við um FLESTAR af þeim olíum sem finnast í búðum hér heima.

Hér er listi yfir ólífuolíur sem eru ekki 100% og þær sem stóðust prófið.  Allar þær sem féllu á prófinu fást hér heima, en ég kannast ekki við neina af þessum sem stóðust það.

Hér er rannsóknin og niðurstöður.

Svo var skrifuð var heil bók um málið sem væri gaman að lesa

Hér er smá lesning en ég held það sé ekki hægt að finna betri upplýsingar um ólífuolíu á einum stað en hér

Og fyrst ég er að henda inn öllum þessum linkum á annað borð þá væri gaman að kíkja nánar áþessa síðu.

Ef þið viljið góða ólífuolíu þá mæli ég með Frú Laugu. 

Ég treysti þeim. Þeir eru með stóran dúnk af lífrænni olíu frá Sikiley sem mér finnst mjög góð.  Þá kemur maður með sína eigin flösku sem maður fyllir á.

Það eru margir þekktir skandalar í matarheiminum. Hér er búið að taka þá saman í eina bók. Það er bara sorglegt að geta ekki treyst fólki til að gera hlutina samviskusamlega.

Ég tala nú ekki um þegar verið að vega að ungum börnum eins og þegar upp komst um mjólkurformúluna í Kína. Þar hafði einhverjum skít verið bætt við formúluna svo hún virtist próteinríkari. Börn dóu eða urðu mjög veik.

Það er bara ekkert skrítið að maður er skeptískur á mat og kaupir ekki hvað sem er þegar allt snýst um að græða og græða meira svo það bitnar á framleiðslunni.

En á léttari nótum…

GLEÐILEGT SUMAR!

blom

Ég ætlaði að gera hefðbundna beef dip samloku um daginn en var ekki með nógu gott kjöt til þess. Það þarf alvöru roast beef þar.

Þannig að ég blandaði saman tveim uppskriftum því ég var að elda flatan klump sem á það til að verða svolítið þurr við ofneldum. Hann hentar víst ekki vel í ofninn, en það er mælt með þvi að steikja hann á pönnu.

Þannig að ég kryddaði hann frekar spicy og endaði svo á að sjóða hann aðeins í soðinu eftir að ég skar hann í þunnar sneiðar. Þetta endaði sem sagt á því að vera ágætis kjöt og það sem eftir var daginn eftir var étið upp til agna af nautabóndanum sjálfum.

beef dip

Hálfgert Beef dip

  • Klumpur
  • Oregano, 2 msk
  • Heitt pizzakrydd frá pottagöldrum, 1 msk
  • Salt, eftir smekk
  • Pipar , eftir smekk

Nuddið helminginum af kryddblöndunni á kjötið, lokið því á þurri pönnu á öllum hliðum.

Setjið kjötið i ofnskúffu.

Eldið í 20 mín við 220°c. Lækkið hitann niður í 200°c og bætið við 1 l af vatni og rest af kryddblöndu í ofnskúffuna.

Skerið kjötið þunnt.  Setjið soðið úr ofnskúffunni í pott og sjóðið kjötið í soðinu í smá stund ef kjötið er þurrt.

Berið þunnt skorið kjötið fram með soðinu, ítölsku sub brauði, papriku sem þið hafið skorið i strimla og soðið í korter. og jalapeno.

beef dip

Enn eitt brauðið, og ekki af verri endanum. Brilliant með brönsinum

Nú las ég að verið sé að gera tilraunir með að auka D vítamín í sveppum hjá Flúðasveppum.

Ég fór aðeins að googla um D vítamín í sveppum og rakst á þessa grein á heillheimur.is.

Hér má lesa aðeins meira um sveppi og D vítamín

Mér finnst bara eitthvað ónáttúrulegt að vera sífellt að breyta mat, en kannski er það bara náttúrulegt fyrst þróunin er þessi og tæknin til staðar.

Ég mun  halda mig við sveppina sem hafa ekki verið D vítamínbættir og fá mér þá frekar lax með sveppunum til að fá D vítamínið.  Ég hef fulla trú á að nóg sé af næringu í fjölbreyttu mataræði.

sveppir

Ég hef verið dugleg við að gera heimagerð brauð.  Ég prófa gjarnan nýjar uppskriftir hvað varðar hlutföll og hvort ég noti egg, mjólk og smjör í degið eða hvort ég geri brauð úr pizzadeigi.

Ég fann uppskrift  sem bar titilinn FEATHER LIGHT ROLLS.  Feather light hljómaði vel í mínum eyrum enda er maður alltaf að leitast efir því að gera létt og loftrík brauð.

Ég var mjög sátt við þessa uppskrift.  Brauðið var bakað í potti, en potturinn þarf að vera Cast iron, enamel eða keramik og ég mæli með því að baka í potti og hafa lokið á.

morgunverðarbrauð

Laufléttar brauðbollur

  • 1 msk ger
  • 1 1/4 bolli volg mjólk
  • 1/4 bolli sykur
  • 1/4 bolli matarolía
  •  2 stór egg
  • 3 1/2 bolli hveiti
  • 1 msk salt
  • 4 msk smjör

Blandið saman geri, mjólk, sykur, olíu og eggi í skál.   Bætið við 2 1/2 bolla af hveiti og látið vélina vinna í eina mínútu.

Bætið við saltinu og restinni af hveitinu smám saman þar til áferðin er orðin góð.  Hrærið í hrærivél í smástund, eða hnoðið með höndum.

Mótið kúlu úr deiginu, setjið í stóra skál, breiðið yfir hana röku viskastykki eða plasti og látið hefast í 1-2 klst.

morgunverðarbrauð

Skiptið deiginu í kúlur á stærð við tennisbolta, ég gerði 8 kúlur. Setjið kúlurnar í pottinn, eina í einu og rúllið þeim upp úr smjörinu sem er í pottinum.

morgunverðarbrauð

Lokið pottinum og látið deigið hefast, ca 40 mín.

Þegar deigið er búið að hefast bræðið þá smjörið í pottinum sem þið ætlið að baka það í og veltið pottinum svo smjörið leiti upp á hliðarnar.  Eitthvað af smjörinu liggur svo eftir í botninum á pottinum, það er gott.

morgunverðarbrauð

Hitið ofinn í 180°c.  Setjið pottinn í  ofninn og bakið í 20 mínútur.  Takið lokið af pottinum og bakið í 10 – 15 mín til viðbótar.

Ekki vera að opna ofninn að óþörfu og sífellt kíkja á brauðið á meðan það er með pottlokið. Það lengir eldunartímann.

morgunverðarbrauð

Takið pottinn úr ofninum, takið brauðið úr pottinum, þökk sé smjörinu þá er það lítið mál.

Eins og alltaf þá eru þessar lang lang bestar enn volgar úr ofninum.

Besti eftirréttur sem ég hef smakkað langa lengi, kókós desert

Þetta er einn besti eftirréttur sem ég hef smakkað. Ég smakkaði hann fyrst hjá bóndakonunni á Hálsi og fékk að sjálfsögðu uppskriftina.

Ég lét svo vaða í að prófa hann núna um páskana, sem eftirrétt á Páskadag.  Ég var með svo miklar væntingar og vissi svo sem ekki hvort hann yrði jafn góður hjá mér.  En, ég fylgdi uppskriftinni samviskusamlega og hann varð alveg jafn góður og sá sem lifði í minningunni.

Þannig að þessi uppskrift er skotheld og ég algjörlega gjörsamlega mæli með því að þið prófið þennan eftirrétt. Hmmmm, það sakar ekki að prófa!

Svona fallegur var eftirrétturinn hjá húsfrúnni á Hálsi

Kókós desert

  • 400 ml kókósmjólk í dós
  • 30 g kókósmjöl
  • 120 g sykur
  • 3 gelatin blöð
  • 400 ml rjómi
  • 2 msk ferskur sítrónusafi
  • 10 g vanillusykur (eða 1 tsk vanilludropar)

Kókósmjólk, kókósmjól, sykur, vanillusykur og sítrónusafi sett í pott og fengin upp suða.  Takið pott af hellu og látið standa í 5 mín.

Setjið kókósmjólkurblönduna í skál og bætið gelatíni við og hrærið því vel saman við, látið kólna í 40 mín.

Þeytið rjómann og blandið honum saman við herlegheitin.

Kælið inn í ísskáp í a.m.k 2 klst

Berið fram með rifsberjasósu eða einhverri góðri berjasultu. Svo er hægt að skreyta hann með rifnu góðu súkkulaði og blæjuberjum.

Ég notaði þessa uppskrift af sultu með.

Skógarberjasulta

  • 2,4 dl blönduð ber (frosin) ég notaði berjablöndu, jarðaber, hindber, bláber ofl.
  • 1/2 bolli sykur
  • 1/2 dl vatn

Allt sett í pott og leyfið suðu koma upp.  Látið þá malla við meðal hita í 10 mín.  Setjið sultuna í skál og leyfið henni að kólna.  Ef þið viljið hana hana maukaða þá skellið þið henni í blender (eða maukið með töfrasprota)

Hversdagslífið tekið við og 45 krydda blandan

Ég vona að þið hafið fengið ykkur páskaegg með góðri samvisku þetta árið því það er svo hol(l)t að innan.  Er það bara ég eða spændust þessi egg upp eitthvað fyrr en í gamla daga.  Ég man þegar maður var lítill þá gat maður verið að maula á einu eggi alla páskana.  Nú setti ég brotið eggið á disk og það var horfið áður en ég gat lesið málsháttinn.

Við vorum svo heppin að eyða páskadeginum með nágrönnum okkar hér í sveitinni. Fyrst var farið í brunch til bændanna.

Þar eru skemmtilegir siðir sem húsfrúin kom með sér frá Sviss, þaðan sem hún er. Fyrri siðurinn er að bjóða upp á freyðivín eða Mimosa, ekki slæmur siður það og hinn er einhverskonar eggjaleikur.

paskahefdir

Hún litar eggin með náttúrulegum litum, sýður þau með t.d lúsum eða laufum og fær þannig á þau mjög fallega liti. Þessi egg eru ekki hol að innan heldur eru þau soðin í öllu sínu veldi og síðan borðuð. En leikurinn er sá að tveir skella saman eggjum sínum og ef eggið þitt brotnar ekki þá máttu ekki borða það fyrr en einhver annar er með egg til að skella saman við þitt egg þar til það brotnar.

Brunchinn var svo ekki af verri endanum.  Margt girnilegt í boði, enda miklir matgæðingar hér á ferð, professional matgæðingar sem reka nautabú og sælkeraverslunina Matarbúrið hér í Kjós.

nautatunga

Það sem mér fannst sérstaklega spennandi var nautatungan.  Hún var svo meir og bragðgóð, alveg lungamjúk, eða ætti ég að segja tungumjúk?

Svo var farið heim og slakað á því ekki þurfti ég að sinna kvöldmat heldur.  Nágrannarnir hér við hliðina á okkur komu nefnilega í heimsókn kvöldið áður og tóku með sér lambalærið mitt þegar þeir fóru.

Þau lumuðu á allskyns marakóskum  kryddum og vildu bjóða okkur í páskamat. Þessir nágrannar eru einnig listakokkar (voðalega er ég heppin með nágranna, allir snillingar í eldhúsinu og hafa gaman að þvi).

lambalæri

Úr varð að þau tóku lærið því fátt fer betur saman en marokkósk krydd og lamb.  Og ekki sé ég eftir því.  Lambið smakkaðist ótrúlega vel og meðlætið var brilliant og félagsskapurinn draumur einn, því fyrir utan nágrannana í næsta húsi komu líka bændahjónin sem buðu okkur í brönsinn.

Eins og góðum kokki víst sæmir þá var ekki farið eftir neinni sérstakri uppskrift og kryddin sem voru notuð fást ekki hér, en þar var m.a ilmandi cumin og kryddblanda sem nefnist 45 krydda blandan.

Í Marakkó er hver kryddsali með sína eigin “45 krydda blöndu” sem getur þó innihaldið allt að 100 krydd.   Þessi blanda nefnist Ras el hanout og er blandað saman af bestu kryddum salans.

Það er smá lesning um Ras el Hanout á wikipedia.

lambalæri

Einnig fór í pottinn sæt kartafla og laukur.  Meðlætið var svo kryddaðar sveskjur, lambasoðið, kartöflur og jógúrtsósa.  Ég sá um að gera sósuna og reyndi að hafa hana í marókóskum stíl.  Því miður átti ég ekki myntu, en myndi eflaust bæta henni við næst svona upp á stílinn.

Magnið í þessari uppskrift er ekki svo nojið. Ég mæli með að þið smakkið hana til.

jógúrtsósa

Jógúrtsósa

  • Grísk jógúrt
  • Rifin agúrka
  • Rifinn sítrónubörkur
  • Ferskur sítrónusafi
  • Fersk mynta
  • Hvítlaukur
  • Salt
  • Smá pipar

Öllu blandað vel saman í skál.  Rífið agúrkuna með rifjárni.

Þetta voru með skemmtilegustu páskum sem ég man eftir.

Heilaga þrenningin var til staðar, góður matur, góð vín

og góðir vinir.

Þið fáið svo uppskrift af brálæðislega góðum eftirrétt næst, ég er að meina það, BRJÁLÆÐISLEGA góður! : )

Heimagerðar asískar núðlur og wok

Það hefur alltaf verið á dagskrá hjá mér að gera asískar núðlur, og loks lét ég vaða.  Þær eru í sjálfu sér svipaðar í gerð og ítalskt pasta.  Sem sagt, ekki flókið, smá dútl og algjörlega þess virði.

Það er hægt að nota pastavél til að fletja þær út og skera, eða þá bara kökuefli og hníf.  Nema þið séuð núðlugerðameistarar og getið teygt þetta út í höndunum, stefnan er að sjálfsögðu tekin á að mastera þá list.  Þessi hér er nokkuð góður…

Ef þið sláið inn hand pulled noodles á youtube koma upp þó nokkur myndskeið.

núðlur

Heimagerðar asískar núðlur

  • 1 3/4 bollar ískalt vatn (1 bolli er 2,4 dl)
  • 1 tsk salt
  • 1/2 kg hveiti
  • 1 eggjarauða

Blandið salti og eggjarauðu við vatnið.  Setjið hveiti á borð eða í skál, myndið holu og hellið vatninu smám saman við hveitið þar til þið eruð komin með gott deig.  (það fer eftir hveitinu hversu mikið af vatninu þið þurfið).

núðlur

Hnoðið deigið í höndum í korter þar til það verður mjúkt og flott.  (Eða í Kitchen aid)

Hvílið deigið í nokkra klst við stofuhita. (3-8 klst)

Rúllið því út í núðlur, með pastavél eða kökukefli og skerið það niður í núðlustrimla.

Sjóðið í nokkrar mínútur, 4- 7 mín.

núðlur

Wok

  • 1 paprika
  • Ferskur chile
  • 3-4 hvítlauksrif
  • 1 msk ferskur rifinn engifer
  • Ferskur kóríander
  • Rifin lime börkur af einni lime
  • Vorlaukur, 2-3 stk
  • 3-4 msk jarðhnetuolía til steikingar
  • 2-3 msk Thai sweet chili sauce
  • 1 msk soya sósa
  • Lúka af salthnetum (sem ég var búin að mylja)

Steikið allt á wok, bætið við hnetum, kóríander, soya og thai sósu í lokin.

Blandið núðlunum saman við og berið fram með Thai sweet chili sauce og soya.

Þið getið leikið ykkur með grænmetið, síðast notaði ég þessa uppskrift og hún var ótrúlega góð, þar á undan notaði ég meira af grænmeti, t.d sveppi og gulrætur.

Heimagerðar vorrúllur og vorrúlludeig

Ég er að verða óþolandi í öllu þessu heimagerða, en það er ekki fyrr en ég fer að rækta og mala mitt eigið hveiti sem ég verð sátt…

Nei, ekki alveg.  Það er samt gaman að prófa að gera heimalagað frá grunni.  Maður lærir ýmislegt á því og þá oftast hvað það er auðvelt að gera hlutina, stundum ögn tímafrekara en að grípa í tilbúið en yfirleitt alltaf þess virði þegar uppi er staðið, sérstaklega hvað bragð varðar.

Það er leikur einn að gera deig fyrir vorrúllur. Heimagerðar vorrúllur eru lostæti. Ég gerði fyllingu sem var að minnsta kosti ótrúlega góð.

Með þessu verður að vera heimagerð Thai sweet chili sósa.

Passið ykkur bara á að vera ekki í stressi að rúlla upp vorrúllunum, gefið ykkur góðan tíma í það. Ég hefði mátt vanda mig ögn betur, bara svona upp á presentatioooon. En útlitið að þessu sinni hafði engin áhrif á bragðið.

vorrúllur

Vorrúllur (fyrir 4)

Deig

  • Hveiti, magnið er eins mikið og þarf til að fá gott, mjúkt klísturslaust deig.
  • 1.5 dl vatn
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 tsk salt
Hnoðið ofantöldu vel saman þar til þið fáið mjúkt og gott deig.

Fylling

  • 2-3 gulrætur
  • 3-4 vorlaukar
  • 1 rauð paprika
  • 2-3 rif hvítlaukur
  • 2-3 msk ferskt engifer
  • 1 lúka af sveppum
  • 1/4 haus kínakál
  • Ferskt kóríander, góð lúka
  • Skvetta af soyasósu
  • 1-2 msk sweet chili sósa

Skerið grænmetið fínt, t.d í mjóa stutta strimla og saxið kálið.  Raspið engifer og hvítlauk.  Steikið allt ofantalið á wok pönnu.  Bætið við chili sósu og soya.  Bætið við kóríander í lokin. Leggið grænmetisblönduna til hliðar.

vorrúllur

Rúllið út  deiginu mjög þunnt og skerið í ferninga (ca 10×10 cm).  Leggið 1-2 msk af grænmetinu á deigið og rúllið upp.  Hér er góð myndskýring á hvernig hægt er að rúlla upp vorrúllum ásamt góðum ráðum við að gera vorrúllur.

Steikið á pönnu eða wok í slatta af sólblóma olíu eða hlutlausri steikingarolíu, um eina mín á hvorri hlið.  Það er líka hægt að djúpsteikja þær alveg.

Hrísgrjón

Ég bar einnig fram hrísgrjón sem slógu í gegn. Þegar ég var búin að sjóða þau svitaði ég papriku og vorlauk á pönnu og bætti svo við hrísgrjónum, cashew hnetum, fersku kóríander og smá salti ásamt 2-3 msk af thaí sweet chili sósunni sem ég gerði.

sriracha sósa

Svo er mjög gott að hafa chili mayo með.  Það gerði ég með þvi að blanda saman sýrðum rjóma og sriracha sósu.  Það má líka nota mæjónes, heimagert að sjálfsögðu 😀

Einfaldur jógúrtís, engin sykur – bara hunang

Þetta er einstaklega einfaldur ís. 3 hráefni, jógúrt, hunang og ber.

jógúrtís

Jógúrtís

  • 1/2 L grísk jógúrt (eða venjuleg)
  • 1,2 dl hunang
  • 2,5 dl ber (ég notaði fersk bláber og jarðaber, mættu líka vera frosin ber)

Blandið saman jógúrti og hunangi.

Saxið berin, eins smátt og þið viljið og blandið við jógúrtið.

Ég tók helminginn af berjunum og maukaði með töfrasprota við jógúrtið.

Ég lét svo hinn helminginn vera fremur smátt skorið, bláberin þó bara til helminga. Bara smekksatriði…mætti alveg mauka allt eða ekkert og allt þar á milli…

Ég setti part af blöndunni í frostpinnaform og rest í kassalaga plastform. Frystið í a.m.k 3 klst.

Þegar ég bar fram ísinn úr kassanum þá skar ég hann í sneiðar (eins og ef ég væri að skera brauð í sneiðar).

Þetta er ís sem má þróa.  Ég sé alveg fyrir mér að gera jarðaberjasýróp og blanda smá af því saman við.  Þá yrði þetta jógúrt ís og sorbet í einum.